Efn 203
Vera: Nei, það geri ég ekki.
Helga: Færðu þig þá bara ekki ti þess?
Vera: Ég fer bara öll í mínus

Þeir taka það til sín sem eiga það.
Gleðilegt 2007!
Jæja! Jól, áramót og annað vesen að baki og skólinn byrjaður aftur.. Og þar sem ég er búin að vera extra latur bloggari ætla ég að slá heilt býflugnabú í einu höggi og spara fullt af tíma með punktabloggi:
- Keyrði suður í brjálaðri rigningu og roki í útskrift hjá Kollu sys og allir sluppu lifandi og óskaddaðir úr þeirri bílferð.
- Kolla fékk húfuna og verðlaun fyrir hæstu einkunn í listum og menningu

- Veisla heima hjá Kollu og Þorsteini og engin smá veisla það!
- Fórum í bæinn snemma á fimmtudeginum og svo norður.
- Bjarni gaf mér alltaf dýra jólagjöf!

- Pabbi missti stjórn á bílnum á Holtavörðuheiðinni og bíllinn valt útaf en allt í lagi með alla en bíllinn ónýtur.
- Jólin voru góð og ég fékk ógillega flottar gjafir

- Ég skar mig á brauðrist.
- Áramótin voru góð.
- Fór á áramótaball á Blönduósi sem var bara nokkuð gott þó svo að einhver hafi ælt á fína jakkanni minn og hef ég Húnvetning grunaðann!
- Á þvottamiðanum á jakkanum stendur DO NOT WASH, en ekkert um þurrhreynsun.. á ég þá bara að henda honum?!?!
- Fullt fólk getur verið óendanlega leiðinlegt!
- En þó ekki Þórdís og Óskar

- Ég var tekin doggy style/trekant/ferkant á dansgólfinu en varð þó ekki meint af.
- Skapti verður að læra að halda kjafti.
- Palli var fullur.. mjög fullur...virkilega fullur.. hann var á rassgatinu
- Palli datt í gólfið og ég ætlaði ða reyna að grípa hann en fékk í staðinn skóinn hans í andlitið... hann getur sko bara verið í gólfinu he*****ð!
- Nýársdagur fór í að setja ormalyf oní ca. 70 hross.. ég var afar sibbin.
- Ég elska mömmu og pabba mjög mikið
- Og Pétur... samt ekki alltaf..
- ..Alls ekki alltaf..
- og Kollu... og alla
- Ég er að verða væmin.
- Þetta voru mistök af minni hálfu..
- Fór suður með rútunni 2. jan og var svo heppin að Anna Kristín var samferða mér

- Ég fékk snilldar jólagjafir frá Svövu og Maríönnu.
- Byrjaði í skólanum 3. jan
- Ég er með "Sofnaítímum Syndrome"
- Bjarni og familía fóru til Austurríkis í nótt og ég er að passa kötinn, húsið og bíl mömmu hans á meðan.. Hvað leggur maður ekki á sig fyrir fyrrv. tengdó

- Ég, Maríanna og Svava stefnum á að fara norður á þrettándaball um helgina.
- Þetter nú komið út í sprell.
- Ég ætla að fara að hlusta á Sigga Stæ.
- Sæl að sinni.
Kellingar og bílar?!?
En yfir í allt aðra sálma..
Jólahlaðborð Autobahn var síðastliðið sunnudagskvöld og fór mjög vel fram, svo ekki sé meira sagt
En að sjálfsögðu nennti fólkið ekki alveg að fara heima þanna klukkan 1 svo reynt var að plögga partý einhverstaðar en oftar en ekki strandaði það á ungabörnum í partýpleisinu. En að lokum var ákveðið (að ég hélt) að fara upp á Kjalarnes í höfuðstöðvar Maríönnu. Og það fór semse þannig að ég og Tommi brunuðum frá einum enda alheimsins (Seltjarnarnesi) á hinn (Kjalarnes) og nema hvað að þegar við erum mætt er enginn annar kominn, ekki einu sinni Maríanna
Mríanna hafð semsagt tynt bíllyklinum niðrá Seltjarnarnesi og Jökull bróðir Svövu skutlaði henni heim og allir beiluðu á að mæta...
En ég ætla að reyna að henda inn einhverjum myndum.. og þar á meðal frá jólahlaðborðinu, svo endilega tjekkið á þeim...
L8er!
Djöfull varð þetta langt blogg!
Jáhh! það er sko heilmargt búið að gerast í hinu stórskemmtilega lífi mínu uppá síðkastið. Byrjum á byrjuninni
Á bæði þriðjudags- og miðvikudagskvöldið fór ég að sofa rúmlea 3 og hafði þá afrekað það er lesa heila bók í ensku hvort kvöldið og er alveg drullustolt af sjálfri mér, sjálfum tossanum
.
Á fimmdaginn var svo jóladagur í skólanum og ég var ógillega fín í pilsi og fjólubláum sokkabuxum
hehe.
Og Maríanna snillingur með meiru var búin að leysa skreytingaleysið á korktöflunni í stofunni með því að hengja upp svo líka fottar myndir af öllum í bekknum á alla töfluna (meira að segja sólheimabros-myndina af mér haha).
Svo datt einhverjum snillingi i hug að kveikja á einhverjum rúmlega 100 sprittkertum í miðri stofunn þannig að það var ekki líft í stofunni fyrir hita! En hverjum er ekki sama?
En þar sem stjörnukeppnin var í fullum gangi skifuðum við eitthvað ógeðslega sleikjulegt um alla kennarana, Jóhönnu, Ólaf og námsráðgjafann(alveg dottið úr mér hvað konan heitir
) á aðra töflua í stofunni og þar sem við vorum í símari hjá Friðsemd ákvað ég að leggja hina töfluna algjörlega undir hana.. hehe.. (sjá mynd):
Og nema hvað að þá fengum við hvorki meira né minna en 3 stk. stjörnur!![]()
#1-Flottasti srákurinn: Baddi (sjá mynd):
#2-Sparilegasti bekkurinn (sjá myndir):


#3-Bestu móttökurnar
Þvílíkir snillingar![]()
En á fimmtudaginn voru einnig kynnt úrslit kosninga í stjórn Autobahn og ég ætla bara hér með að opinbera það að ég gaf Daníel mitt atkvæði.....
En þetta var bara byrjunin á frábærum degi (fyrir utan úrslit kosninga).. En eins og alþjóð veit fóru einhverjar rosalegustu HARD ROCK-Skvísur (Ég Silja og Anna Kristín) á RockStar tónleikana og ég get ekki sagt annað en að þetta hafi verið þeir allra bestu tónleikar eða bara uppákoma sem ég hef farið á! Ég er nú bara ennþá að ná mér
! Og eins og ALLIR hafa fengið að heyra þá hittum við skvísurnar Toby félaga minn og við gáfum okkur smá tíma frá því að hlusta á Joss til að láta taka myndir af okkur með Toby og talandi um góðmennsku mína, þá leifði ég kútnum nú að smella svona eins og einni áritun á bringuna á mér og handlegginn á stelpunum..Hvað geri ég ekki fyrir hann?
Topp 5 frá tónleikunum:
#5: Storm - Ladylike
#4: Dilana - Roxanne & Mother Mothe
#3: Magni - Dolphins Cry
#2: Toby - Throw it all away & Layla
#1: Hittum Toby!
En á föstudaginn lagði ég svo land undir fót og lá leiðin á 1,2 Selfoss. Þortsteinn hennar Kollu systur var í einhverju vandræðum og hún fékk mig til að koma og digga húsið svo þau skötuhjúin gætu nú flutt inn.. Og ykkur að segja þá heppnaðist þetta nú bara helvíti vel og húsið er bara alveg drulluflott. Til hamingju Kolla og Þorsteinn![]()
Gærkvöldið fór svo þannig að ég fór í bæinn og kíkti á frændfólk og rökræddi um íslenskt menntakerfi... gaman?
Svo fórum við Finnur á rúntinn og kíktum á Veru og Hafdísi og Finnur var svo heppinn að fá að sitja og hlusta á krassandi kjaftasögur og almennt blaður í einhverja tvo tíma hjehje![]()
En klukkan rúmelga sjö á sunnudagsmorguninn var ég fyrir afar eftirminnilegri lífsreynslu sem ég gleymdi þó mjög fljótlega... En þannig var mál með vexti að ég vakna við það að dvergur (Maríanna) og útsendari djöfulsins (Svava) eru búnir að brjótast inní herberið mitt og færa mér Maltesers-poka og 1l kók í jólasveinabúningi.... Og þið getið ekki verið hissa á því að þegar ég vaknaði svo kl 3 að ég hafi haldið að þetta hafi verið draumur og fengið áfall þegar ég sá Maltesers-pokann og jóla-kókið á gólfinu
.. En þá rámai mig eitthvað í það þegar Svava var að far aftur út á svalirnar og þóttist henda yfir mig enhverju álfa/drauma/Óla Lokbrár-dufti
...Djöfull getið þið verið klikkaðar!
Það er soldð miið af stafsetningarvillum í þessu... kenni lyklaborðinu alfarið um það !
L8er!
Ég er algjör bjáni!
Og þó svo ég viti hvað klukkan er þá ætla ég aðeins að fresta svefninum og tjá mig aðeins um gærkvöldið.
En þannig var það að Maríannan keyrði landið á enda (Kjalarnes-Hamrahlíð) til að djoína mér í tveggja manna teiti. Svo lá leið okkar uppí sveit (Mosó) til að fremja hrottalegt mannrán. Sem var btw ekki eins einfalt og í bíómyndunum
En við enduðum semsé á því að vera geðveikt lame og nota dyrabjölluna (púkó!) og svo kom Svava bara sjálfviljug út með okkur. Svo var stefnan hjá mér nú sett á það að fara aftu í menninguna (rvk). En stelpurnar vour greinilega búnar að gera með sér þögult samkomula um að eyða öllu bensíninu mínu og geðhilsu minni á götum Mosfellsbæjar! Þær létu mig keyra sona 3 hringi á hverju hringtorgi því þær voru svo lengi að ákveða sig hvaða röngu leið þær ætluðu að láta mig fara
Seinna var stefnan svo aftur sett á björgunarleiðangur í Mosó og var ætlunin að bjarg Finn af Ásláki. En það merkilega við ferðina var annars það að þegar við vorum að renna framhjá skeifunni fór einhver strákur á Benz að sýna sig eitthvað og var í einhverri ímyndaðri spyrnu við okkur langleiðina í Mosó þar sem hann sneri við. Ég reikna ekki með því að hann hafi verið í einhverju kappi því Polo vs. Benz er ekki beint spennandi kapp þó svo að ég hafi aðeins þanið hann Pópó minn
Svo á leiðinni til baka komum við við (nástaða!) á ákveðnum stað þar sem ég fann ákveðinn hlut, sem olli óþarfri, ósanngjarnri en þó skiljanlegri geðshræringu sem ég nota sem afsökun fyrir aðeins meiri ökuníðingshátt..(gott dulmál Helga!)..Það skilja þetta kannski sona 4 manneskjur en ég bara varð að skrifa þetta.
En yfir í allt annnað.. Ég var að skoða bloggið hjá Axeli Kára og þar var þetta líka frábæra myndband frá afmæli Mæju á Kúskerpi. Og þvílík snilld maður! Hefði verið geggjað að vera á svæðinu. Ég verð að hugga mig við það að það eru einhverjir 11 dagar í júlafríið og sveitina.. Sem er mjööög jákvætt
En ég er ekki frá því að ég verði að fara að koma mér í bælið, þannig að...
L8er!
Borínef....
Mér leiðist, ég er þreytt, en er samt ekki alveg til að fara að lúlla mér. Ég er alltaf að sjá það betur og betur hverjir stærstu gallar mínir eru. Þeir eru það að urfa að sofa og borða. Ég er til dæmis búin að borða 2x í dag (eða gær) og er þar af leiðandi búin að vera svöng í eiginlega allan dag. Svo er ég soldið gjörn á það að sofa afar takmarkað. Og eftir að hafa lesið nýjasta blogg Steindórs er ég með mjög slæma samvisku yfir að sofa sona óreglulega
. Eins held ég að ef maginn á mér væri manneskja, myndi hún hata mig... kæra mig fyrir vanrækslu.
Kosningin um bílamál Hadda fór fram í liðinni viku og fór kjörsóknfram úr björtustu vonum. Og fóru atkvæðin eins og hér sést:
Á Haddi að leifa mér að skutla honum í skólann??
- Auðvitað! Hann gæti dáið úr kulda! 11 / 35%
- Pff.. hann hefur gott af labbinu. 0 / 0%
- Hell no! Látum hann frjósa í hel!! 5 / 16%
- Haddi... fáður þér bílpróf! 15 / 48%
Vil ég því draga þá ályktun að Haddi eigi að fá sér svo sem eins og eitt stykki bílpróf og að fólk álíti almennt að hann sé í góðu formi þar sem enginn vildi meina að hann hefði gott að röltiu....
En af því að ég er soldið mikið fyrir það að monnta mig á öllu mögulegu ætla ég bara að benda á það að ég á miða á Rockstar-tónleikana![]()
Og svona í lokin ætla ég að skella sona gelgjulegum spurningalista hénna fyrir neðan og endilega fyllið hann út....
L8er!
Hefur þú:
[ ] talað við mig
[ ] elskað mig
[ ] kysst mig
[ ] rifist við mig
[ ] öskrað á mig
[ ] hlegið af vitleysunni í mér
[ ] grátið útaf mér
[ ] sært mig
[ ] verið særð/ur útaf mér
[ ] gist með mér
[ ] baktalað mig
[ ] logið að mér
[ ] móðgað mig
[ ] knúsað mig
[ ] hatað mig
[ ] slegið mig
[ ] liðið eins og ég hataði þig
[ ] vorkennt mér
[ ] kitlað mig
[ ] fengið fiðring í magann útaf mér
[ ] tekið mönun frá mér
[ ] manað mig
[ ] elskar eða saknar mín akkúrat núna
[ ] saknað mín
Er ég?
[ ] klár?
[ ] sæt?
[ ] ljót?
[ ] "frík"?
[ ] traust manneskja?
[ ] frábært að vera nálægt?
[ ] vond?
[ ] leiðinleg?
[ ] góð manneskja?
Hefurðu eitthvern tímann
[ ] óskað að ég væri hjá þér?
[ ] viljað númerið mitt?
[ ] Dreymt um mig?
[ ] Skoðað síðuna mína oftar en 5x á dag?
Ert þú
[ ] ánægð/ur með að þekkja mig?
[ ] Að hugsa um mig
Bla, bla, bla...
En eins og frægt er orðið féll ég í stæ 503 og var því í skólanum í síðustu viku, sem var í rauninni bara fínt því það var alltaf stuð í skólanum. (Baddi hefði kannski alveg mátt sleppa því að möppuna sem er í screen saver í tölvunni minni af ógelsegu klámi!) En á fimmtudagskveldið voru ég, Haddi, Tommi , Maríanna og Sigrún að læra í skólanum til sona 10, þegar Ólafur kom og rak okkur út. Þá vandaðist málið því við áttum eftir að læra meira og niðurstaðan varð sú að við fórum öll heim til mín í Hamrahlíðina og sáum og lærðum í litla herberginu mínu. Og ég þakkaði nú bara guði fyrir það að það eru svalir á herberginu því annars hefði orðið algjörlega loftlaust! Svo djoínuðu Svava og Baddi í nördapartýinu. Ég get rétt ímyndað mér hvað venjuleg manneskja hefði haldið ef hún hefðui labbað inná okkur... Sjö manns að læra stærðfræði og íslensku í litlu herbergi.... Ja maður spyr sig.. Svo Skiptum við Maríanna fólkinu með okkur og skutluðum því heim. Ég skutlaði Haddi og Tomma heim og ég var ekki frá því að ég myndi bara ekkert rata heim aftur frá Tomma! En það hafðist, sem er jákvætt.
Og daginn eftir náði ég stærðfræðiprófinu, sem einnig er jákvætt.
Og eftir prófið fórum við Maríanna og náðum í ökuskírteinið mitt
Svo var ferðinni heitið í Kringluna og þar var ég nú aðalega í því að standa á skottinu á Maríönnu (sjá mynd-->
Svo rétt náði ég fluginu norður og fór svo gott sem beint í teiti til Þórdísar. Þar var heljarinnar húllumhæ og læti (þá aðallega í Aldísi að sjálfsögðu). Og hér er smá sýnishon af gleðskapnum..


Efitr það fór ég á Krókinn að sækja Pétur og Hjört, og nema hvað að það var búið að berja Pétur þannig að hann var með heví glóðarauga....Bjáni!
En fleira var það ekki að sinni... Verið þið sæl.
Af hverju verða bloggin mína alltaf svona löng?!
En ég fékk 7 í íslensku og það bjargaði öllu
Svo fór ég í þessa annars ágætu óvissuferð um heligna og skemmti mér bara nokkuð vel. Þar sem Ólafur nokkur skólastjóri bannaði alla vímugjafa í ferðinni beiluðu flestir á að fara síðustu klukkustundirnar og þar af leiðandi vorum við frekar fá, sem var bara allt í lagi sosum. Og af fyrrnefndum ástæðum urðum við Maríanna að hætta við öll áform um öll sýutrypp, áfengisdauða, ælu og annað slíkt... Vorum aðallega í Maltinu og Maltersers-inu.. En við fórum allavega með partýbussinum í Sund á Akranesi og Hlaðir í Hvalfirði sem er fyrir þá sem ekki vita, félagsheimili. Við skemmtum okkur konunglega við draugsögur, hryllingsmyndir og Trivial og gaman að segja frá því að María kennari er núverandi Trivial-meistari Hraðbrautar - klapp fyrir því (Ég sver hún svyndlaði!... næst verður lyfjapróf...(tapsár)) En þessi afþreying hljómar kannski frekar sveitó eða boring eða lame eða eitthvað.. Þettal hljómar soldið eins og plan b eða c, sem þetta er. Málið er að upphaflega hugmyndin, eða plan a var að drekka, gera eitthvað asnalegt sem við myndum ekkert muna eftir daginn eftir og svo myndu allir drepast saman útí honni eða inná klósti eða vottever. En öllum til mikillar gremju kom Ólafur nokkur í veg fyrir öll slík áform. Plan b var þá að fara í SingStar. En Bryndís nokkur var eitthvað á móti því og henni því sjónvarpinu í gólfið og þar af leiðandi var úti um það ævintýrið
En það sem eyðilagði alveg góða skapið fyrir mér var að þegarég og Tommi vorum að fara að sofa í sófunum sem við vorum búin að taka frá þegar við komum fóru ein gellan af fyrra árinu að troða sér í sófann hans Tomma og ætlaði bara að hafa hann þó hann væri frátekinn
Ég var að komast að því að það getur verið gott að vera vinur minn... því ég er gramsari...
Þannig vildi nú til að ég var í heimboði (hehehe) hjá Maríönnu sem var búin að "týna" elskulega i-podinum sínum, sem er kannski ekki frásögu færandi nema hvað að ég var að gramsa í skúffunum hennar og freista þess að finna eitthvað vafasamt og nema hvað að ég opna sona mest áberandi skúffuna á skrifborðinu hennar og hvað ætli hafi verið á efst í skúffunni... Jú auðvitað i-podinn!... Svipurinn á Maríönnu var mjög skemmtilegur þar sem hún var búin að koma með allskonar kenningar um það að skúringakallarnir eða "þrífikallarnir" eins og hún vill kalla þá, hefðu stolið honum og selt hann í ánauð í Tyrklandi.... Ég sendi svo bara reikninginn....
En ég setti hénna inn skoðanakönnun í ljósi þess að Haddi labbaði í skólann í dag neðanúr bæ í sona 10 stiga frosti! Mér líður hreinlega illa að vitaf af honum útí kuldanum.... ég skora á fólk að taka afstöðu!
En eins og áður sagði féll ég tossinn sjálfur í stærðfræði 503 og er þar af leiðandi í skólanum þessa vikuna að reyna að troða runum og röðum af heildunum og öðrum óþverra í yfirfulla heilabúið mitt. Gaman að segja frá því að við Haddi misstum okkur aðeins í nördaskapnum í dag:
Haddi: Helga þegiðu eða ég heilda þig!
Helga: Þá tek ég þig út fyrir sviga!!
Haddi: Hey ekki líta á Tomma, hann er með náttúrulegan logra!!!
LOL!
L8er plp!
Hinn mikli sannleikur
Þið sem í rauninni eruð bestu vinir mínir eigið rétt á að vita þetta, lífið sem ég hef lifað sú saga sem ég hef sagt ykkur og sú manneskja sem ég hef sagst vera, þetta hefur allt verið lygi. Ég harma það að hafa dregið ykkur á eyrunum í allan þennan tíma og fyllt ykkur af fölskum sögusögnum, ég er ekki úr sveit.. ég er ekki einusinni íslendingur... :( ástæðan fyrir því að ég ætla að segja ykkur allt þetta núna er vegna þess að mér þykjir vænt um ykkur, ég elska ykkur og ég vona að þið skiljið að ég þurfti að gera þetta, ég þurfti að fela mitt rétta nafn.
Ég Helga Björg er í rauninni Maharaj Subheshwar Singh krónprins Indlands!!! Foreldar mínir eru Lababara Rosalitid Singh og Karade Sulta Singh, ég er elstur af þremur börnum og ég rækta fjárhunda mér til yndisauka, í frístundum mínum þá kasta ég pílum í gangandi vegfarendur og tæli gamlar konur inní dimm húsasund þar sem að ég bursta í þeim tennurnar hvort sem þær eru samþykar eður ey, það er bara eins og eitthvað brotni inní mér í hvertskipti sem að illa lyktandi kjaftar þeirra hafa verið hreinsaðir með flúorsápu aloavera tannkreminu mínu.. mér finnst.. mér finnst eins og ég hafi verið að gera heiminn að betri stað eða allavega minna illa lyktandi.
Mig dreymir um heim þar sem að lítil börn hérna í Indlandi eiga ÖLL tannbursta og tannkrem ekki einungis þeir vel efnuðu og örvhentu, heim þar sem að allir geta burstað í sér tennurnar. Þessi draumur er ekki óraunhæfur en það er enn langt í land.. tollskoðanir og undirskriftir tannlækna sem á eftir að safna saman en einn daginn hvort sem að það verður í minni líftíð eða seinna þá mun þetta takast!!
Þótt að þetta séu hlutir sem mig hefur lengi langað til að deila með ykkur þá er þetta ekki ástæðan fyrir því að ég boðaði ykkur hingað til þess að lesa hinn mikla sannleik.. hlutur sem ég hef verið að springa mig hefur svo lengi langað að segja ykkur frá og núna þegar að ég er að flytja aftur til Indlands til þess að verða krýndur konungur yfir öllum Indlandsskaganum og öllum litlu eyjunum þarna í kring og öllum litlu ekki mjög hreinu þegnunum mínum.. þegnunum þá meina ég alla litlu Indverjana og ekki einungis fólk og lifandi verur heldur líka steina og mold! Ég stefni ekki að því að vera einn af þessum vondu konungum sem að lætur valdið spilla sér þótt að ég eigi eftir að hækka skattanna til þess að geta fjármagnað ýmsar konunglegar veislur og skemmtanir sem að skattborgurunum mun ekki einusinni vera boðið í og þótt að ég eigi líka eftir að skilda alla til þess að hlýða mér í einu og öllu og öllum ungum pörum að færa mér frumburð sinn að gjöf sem að ég mun síðar meir snæða lifandi... hehe nei ég er bara að hrekkja ég mun ekki borða þau lifandi :) ekki nema að kokkurinn sé lasinn og ég svangur eða þá að barnið geti sigrað mig í skák.
ahhh þeir eru komnir ég verð að fara skrifa meira seinna BB